Reglur Síðunnar

Heimilt er að nota efni af síðunni. 
1.Geta verður heimildar, þannig að heimildin sé jafnframt tengill inná www.aflafrettir.com
2. Bannað er að taka einstaka lista og birtar annarstaðar.  en nota má efni úr listunum í fréttir

Flokkur: Bátar Mánaðarins

13.05.2012 11:30

Bátar Apríl Mánaðarins

Ég sé að ég hef gleymt valinu fyrir mars. og enginn lét mig vita hmm hehe.

allavega hérna er valið fyrir apríl.

Flokkur

Nafn báts

Afhverju

Smábátar yfir 10 BT

Fríða Dagmar ÍS

Aldeilis flott byrjun hjá nýjum báti. Atti miklu kappi við Sirrý ÍS enn varð að lúta í lægra haldi

Smábátar undir 10 BT

Sverrir SH

Varð langhæstur og átti næststærstu löndunina

Dragnót

Reginn ÁR

Er einn af minnstu dragnótabátunum enn náði samt sem áður inná topp 10 og komst mest í tæp14 tonn í róðri

Troll

Steinunn SF

Metið segir allt sem segja þarf

Ísfiskstogarar

Ljósafell SU

Var hæstur austfjarðatogaranna og var einn af 6 togurunum sem yfir 500 tonn náð

Netabátar

Saxhamar SH

Mokveiddi í netarallinu, 57 tonn í stærasta róðrinu sínum

Línubátar

Brimnes BA

Var í mjög góðri steinbítsveiði og varð langhæstur balabátanna

Rækjubátar



Annað


Hannes Andrésson SH

Mokveiddi á sæbjúgunni og fiskað um 160 tonn. Mest 23 tonn í róðri

06.03.2012 20:02

Bátar febrúars

Hérna kemur valið fyrir febrúar.

Flokkur

Nafn báts

Afhverju


Smábátar yfir 10 BT

Tryggvi Eðvars SH

Varð aflahæstur smábátanna og hafði sætaskipti við Kristinn II SH frá því í janúar. Var með 9,3 tonna meðalafla sem er ansi gott


Smábátar undir 10 BT

Addi Afi GK

Ótrúlegt aflamet bátsins þar sem báturinn þurfti að fara þrjár ferðir til þess að ná aflanum. Var með tæp 7 tonn í róðri að meðaltali sem er algert met


Dragnót

Steinunn SH

Varð langhæstur bátanna og sá eini sem yfir 300 tonnin komst


Troll

Steinunn SF

Mokfiskaði og var um tíma efstur. Komst yfir 500 tonn og einungis 3 ísfiskstogarnar náðu því marki


Ísfiskstogarar

Sturlaugur H Böðvarsson AK

Varð hæstur Ísfiskstogaranna og langhæstur HB granda skipanna


Netabátar

Geir ÞH

Rótfiskaði og varð langhæstur, ótrúleg veiði hjá bátnum í 383 tonn einungis 18 róðrum


Línubátar

Kópur BA

Var langhæstur balabátanna með 215 tonn í 22 róðrum


Rækjubátar

Ýmir BA

Varð hæstur innanfjarðarrækjubátanna og þriðji hæsti rækjubátur landsins


Annað





08.02.2012 03:54

Bátar Janúars mánuðs 2012

Látum töfluna tala sínu máli.

Flokkur

Nafn báts

Afhverju

 

Smábátar yfir 10 BT

Kvika SH

Einn elsti og minnsti báturinn sem er á listanum enn náði samt inná topp 15, og líklegast eini báturinn á listanum sem ekki finnst mynd af.

 

Smábátar undir 10 BT

Anna Karín SH

Í fyrsta skiptið sem smábátur á síld kemst á listann og það alla leið inná topp 10

 

Dragnót

Rifsari SH

Var hæstur bátanna í janúar, þrátt fyrir afleitt tíðarfar

 

Troll

Hringur SH

Fór einungis í 3 túra en var með fullfermi í þeim öllum og meðalafla uppá um 75 tonn í túr

 

Ísfiskstogarar

Kaldbakur EA

Varð hæstur og eini togarinn sem yfir 500 tonn náði

 

Netabátar

Hvanney SF

Byrjaði vertíðina vel og varð aflahæstur með um 270 tonn.

 

Línubátar

Kópur BA

Réri mjög stíft á balalínunni og fiskaði ansi vel var með um 170 tonn í janúar

 

Rækjubátar

Sigurborg SH

Var eini úthafsrækjubáturinn sem var að allan janúarmánuð og fiskaði ágætlega

 

Annað

 

 

 

 

07.01.2012 11:58

Bátar Desembers 2011

Hérna kemur valið fyrir báta mánaðarins og núna er það Desember 2011

Flokkur

Nafn báts

Afhverju


Smábátar yfir 10 BT

Vilborg ÍS

Það leit út fyrir að Tryggvi Eðvars SH myndi enda hæstur í Des, en Vilborg ÍS mokveiddi milli hátíða og náði toppnum í fyrsta skiptið í sögu listans. Nýjasti múrsteinininn í Bolungarvíkurmúrnum


Smábátar undir 10 BT

Glaður SH

Varð eini smábáturinn sem yfir 40 tonn komst en fór samt aðeins í 11 róðra


Dragnót

Sólborg RE

Varð þriðji hæsti og fékk 31 tonn í einum róðri sem var langmesti afli dragnótabáts í einum róðri í desember


Troll

Steinunn SF

Varð hæstur í des og komst í 78 tonn í einum róðri


Ísfiskstogarar

Kaldbakur EA

Heldur áfram mokveiði sinni komst aftur yfir 800 tonn á fékk 194 tonn á milli jóla og nýárs


Netabátar

Árni Á Teigi GK

Varð annar hæstur smábátanna á netum og komst í 10 tonn í einum róðri sem er nokkuð gott miðað við desembermánuð


Línubátar

Stafnes KE

Lúðubátarnir réru mjög stíft í desember enda voru þeir stoppaðir um áramótin. Stafnes KE varð aflahæst lúðubátanna


Rækjubátar

Valur ÍS

Ekki oft sem að eikarbátur er hæstur rækjubátanna, en það skeði í desember, Valur ÍS var að veiðum í Ísafirðinum


Annað


Sandvík SH

Var á síldveiðum í breiðarfirðinum í net og gekk nokkuð vel, tæp 30 tonn og mest 6 tonn í róðri


06.12.2011 09:43

Bátar nóvembers

Nóvember búinn og þá er fyrsta valið komið hérna að neðan

Flokkur

Nafn báts

Afhverju

 

Smábátar yfir 10 BT

Dögg SU

Hvað er hægt að segja.  Ævintýrið um Dögg SU heldur bara áfram.  Ótrúlegt hvað báturinn hefur fiskað vel

 

Smábátar undir 10 BT

Birta Dís GK

Átti stærsta einstaka róður allra smábáta undir 10 BT og að auki stærsta róður allra smábáta sem réru frá Suðurnesjunum.

 

Dragnót

Stormur SH

Mjög dræm dragnótaveiði var í nóv, Enn Stormur SH lét það ekkert á sig fá og var langhæstur. 

 

Troll

Hringur SH

Var langhæstur trollbátanna og slagaði vel uppí ísfiskstogaranna

 

Ísfiskstogarar

Kaldbakur EA

Tvær landanir yfir 190 tonn og varð hæstur. Náði yfir 800 tonna afla sem er mjög gott

 

Netabátar

Jökull ÞH

Setti met í mestum afla sem netabátur frá Norðurlandi hefur fengið.  Varð annar á eftir Hvanney SF

 

Línubátar

Sighvatur GK

Varð annar í nóv og komst tvisvar í 100 tonn í einum róðri

 

Rækjubátar

Halldór Sigurðsson ÍS

Mokveiddi í Ísafirðinum og var hæstur þar, ekki nóg með það því báturinn varð hæstur allra rækjubáta á landinu

 

Annað

 

 

 

 

 

28.11.2011 02:05

Bátar Mánaðarins 2.hluti

Eins og kom fram í smá grein sem ég skrifaði Hérna  Þá hafði ég hugsað mér þetta að væri bara einfalt staðlað form.  Þetta er svona tilraun og er ég buinn að útbúa staðlaða tölfu og ég ætla að birta hana hérna til að sýna ykkur hvernig ég hafði hugsað hana. 
Tekið skal fram að bátur mánaðarins þarf ekki endilega að vera aflahæsti báturinn, þó það sé nú kanski oftast þannig. Og þar sem ég er nú einn með þessa ´siðu þá mun ég velja bátanna, enn að sjálfsögðu megið þið gefa ykkar álit á því líka.  
Hérna að neðan má allavega sjá hvernig staðlaða formið lýtur út

Þessi tafla verður ekki með myndum. heldur verður nafn viðkomandi báts þannig að þið getið klikkað á það til þess að sjá mynd af bátnum.  

Flokkur

Nafn báts

Afhverju


Smábátar yfir 10 BT




Smábátar undir 10 BT




Dragnót




Troll




Ísfiskstogarar




Netabátar




Línubátar




Rækjubátar




Annað






24.11.2011 14:08

Bátar Mánaðarins

Undanfarin ár sem ég hef verð að halda þessari síðu úti þá hef ég reynt í lok hvers mánaðars að velja bát, / togara mánaðarins. Það hefur gengið misvel að velja það og oft á tíðum þá hefur það bara hætt.  
ég er að velta fyrir mér að reyna að endurvekja þennan flokk. að velja bát mánaðarins í hverjum flokki fyrir sig.  
Flokkarnir á síðunni er ansi margir og því kanski nokuð erfitt að velja einn bát út hverjum flokki. Mitt mat er þannig að þar sem að enginn annar fjölmiðill er að segja frá því jákvæða sem er í gangi í íslenskum sjávarútvegi eða aflafréttum nema Fiskifréttir. Að þá er alveg rökrétt að ég reyni í það minnsta að benda á það sem mér og kanksi ykkur þykir markvert.
Og fyrst ég er komin í þennan ham þá langar mér varðandi stóru fjölmiðlanna að benda á að hérna á síðuni þá höfum við fengið að fylgjast með vægast sagt ótrúlegum afla hjá Dögg SU.  Öll þessi ár sem ég hef verð að skrifa fyrir Fiskifréttir sem og halda síðunni úti þá hef ég aldrei lent í öðru eins og með Dögg SU.  
Aflametið sem Dögg SU setti í október er einstakt. Og að mínu mati merkilegt, stórmerkilegt.  En hvergi í einum einasta stórum fjölmiðli hefur verið minnst einu orði á Dögg SU.  hvað veldur ég veit það ekki.  Ég hef í það minnsta reynt mitt besta til þess að láta þá vita af því sem er að ske, því í hver skipti sem ég hef skrfað frétt hérna og mér finnst það markverð að þá hef ég sent tengil á fréttina á alla stóru fréttamiðlanna.  
Í Fiskifrétttm þann 24/11/2011 er Karlin í Brúnni Gísli V. Jónsson Skipstjóri á Páli Jónssyni GK.  hann talar þar um atvikið sem skeði um borð í Erling KE og segir. " okkur þykur líka miður ef þetta á að vera eina myndin af lífi um borð í fiskiskipum sem almenningur fær".
Ég er ekki að gera lítið úr þessum atburði í Erling KE, þetta var ógeðfellt.  Fyrir ári síðan þá var Erling KE að mokveiða ufsann sem er jákvædd enn þá hvar hvergi talað um það.  Og  það sama má segja um Dögg SU. Ætli Dögg SU myndi ekki komst í fjölmiðlanna ef hún myndi sökkva fyrir ofhleðslu.  
  Ég veit að ég er kanski að blása út hérna og kanski er þetta tómt raus í mér.  Mér hefur nú verið hrósað fyrir það að blanda ekki pólitík í síðuan og eins og þið hafið séð þá hef ég aldrei tala um kvótamál eða birt fréttir af kvótavandræðum eða þá hitt og þetta varðandi kvótann eða þá nýja sjávarútsvegsfrumvarpið.  
Held að best sé að lýsa þessu þannig að stóru miðlarni sjá um neikvæðu fréttirnar af sjávarútveginum og litli miðilinn aflafrettir sé um þær jákvæðu.  Eða reyni það eftir fremsta megni,
Og ekki má gleyma Fiskifréttum 

og þess vegna held ég að ég þurfi að endurvekja báta mánaðarins.  

Ef ykkur finnst þetta tómt rugl það sem ég að skrifa þá biðst ég afsökunar á því.
kv
Gísli


læt þetta duga 
  • 1

Um Mig

Nafn:

Gísli Reynisson

Farsími:

6635575

Afmælisdagur:

20. ágúst

Heimilisfang:

Fifudalur 23

Staðsetning:

Reykjanesbær

Heimasími:

4217585

Um:

Vinn hjá Hópferðum Sævars. Þeir sem vilja styrkja mig varðandi síðuna þá er bankanúmer hérna fyrir neðan

Kennitala:

200875-3709

Bankanúmer:

0142-15-380889
Flettingar í dag: 1662
Gestir í dag: 394
Flettingar í gær: 1675
Gestir í gær: 408
Samtals flettingar: 2608878
Samtals gestir: 580311
Tölur uppfærðar: 16.5.2012 23:32:50

Tenglar